| 13.08.2009 Fúlar á móti í Loftkastalanum |
Fúlar á móti var vinsælasta sýningin á landinu vikum saman á vormánuðum. Sýningin hætti fyrir fullu húsi í júní, en vegna fjölda áskorana verður hún tekin upp aftur í haust. Nú eru þær Fúlu á móti mættar galvaskar í LOFTKASTALANN í Reykjavík og fyrsta sýningin verður föstudaginn 28. ágúst. Önnur sýning er sunnudaginn 30. ágúst. Miðapantanir eru á www.midi.is,www.loftkastalinn.is og í síma 5271000. Sýningin mun verða sýnd í Loftkastalanum fram í september. Þær Fúlu munu svo sýna á Akureyri um páskana 2010. Íslenskun og leikgerð Fúlla á móti gerði snillingurinn Gísli Rúnar Jónsson og leikstjóri var María Sigurðardóttir. Fúlar eru þær Edda Björgvinsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir og Björk Jakobsdóttir. |
| til baka |


